148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[18:53]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og tel það einmitt mikilvægt að Alþingi komist að niðurstöðu í þessu máli. Ég tel mikilvægt að okkur takist að leiða mál eins og þetta til lykta í þingsal.