148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[18:58]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum seinna andsvar. Þessi sjónarmið komu í sjálfu sér lítið til umfjöllunar í umsögnum eða fyrir nefndinni. Þau hafa hins vegar komið töluvert oft fram í þingsal. Einhverjir af gestunum sem mættu brugðust við þessu og gerðu lítið úr því að t.d. foreldrar hefðu áhrif á endanlegar ákvarðanir barna. Þetta er hluti af því sem gefst tækifæri til þess að þroska í umræðunni á næstu árum, þ.e. með hvaða hætti stjórnmálaflokkar geta beint upplýsingagjöf sinni til þessa hóps.