kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þetta er nú sá vafi sem við stöndum alltaf frammi fyrir þegar við setjum lög hér, að við kynnum að vera að gera mistök. En þeir sem eru sannfærðir um að þetta sé rétta leiðin, eru þeir sem eru tilbúnir að styðja þetta frumvarp.
Ungmenni öðlast kosningarrétt til Alþingis við 18 ára aldur. Miðað við það finnst mér ekkert því til fyrirstöðu að 16 ára geti kosið til sveitarstjórna og í rauninni kannski eðlilegt að fá tækifæri til þess að hafa áhrif á sitt nærumhverfi fyrr heldur en að taka þátt í kosningum á landsvísu.