148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[19:11]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir ágæta ræðu, sem var að sjálfsögðu alveg í samræmi við þann málflutning sem hann hefur haldið fram í þessu máli hingað til.

Ég fór að velta því fyrir mér undir ræðu þingmannsins hvers vegna í ósköpunum við værum að afgreiða þetta mál núna. Það þjónar í sjálfu sér engum tilgangi. Það eru ekki kosningar fyrr en eftir fjögur ár. Það er ekki eins og þetta gagnist núna. En í stað þess að reyna að ná sátt um málið, koma á friði um málið, ætla flutningsmenn þess að keyra það í gegn í eins miklu ósætti og mögulegt er. Það finnst mér alveg stórmerkilegt.

Ég er farinn að halda að þetta snúist í rauninni bara um það eitt að geta sýnt að ákveðinn hópur geti náð málinu fram í þinginu. Ég held þetta snúist ekki lengur um málið sjálft. Ég held að þetta snúist bara um einhver kaup hér á bak við tjöldin sem geri það að verkum að málið eigi að klárast. Mér finnst það ekki gott. Það er engin ástæða til að klára málið núna. Það er búið að breyta málinu þannig að það gagnast engum, ekki fyrr en eftir fjögur ár.

Mig langar að spyrja hv. þingmann út í það hvort ekki væri meiri séns á að ná breiðfylkingu að baki þessu máli, þ.e. að lækka kosningaaldurinn, með því að vísa því til ríkisstjórnarinnar til umfjöllunar, til meðferðar, til þess að koma með tillögur, til þess að mennta fólkið, til þess að ná utan um það í heild og hugsanlega samræma það sem hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni, sem er geysilega mikilvægt.

Það er svolítið sérstakt að kosningarréttur og kjörgengi fari ekki saman. Það er vitanlega enn þá skrýtnara að sjálfræðisaldurinn og kosningarrétturinn fari ekki saman. Það er mjög undarlegt ef við förum að hugsa um það. Það varð til þess að ég fór að velta því fyrir mér hvers vegna í ósköpunum verið væri að keyra þetta mál hér í gegn. Til hvers? Halda þeir sem vilja klára það að þeir græði mikið á því í næstu sveitarstjórnarkosningum? Ég efast um það. Ég veit ekki betur en að kannanir sýni að það sé Sjálfstæðisflokkurinn sem græði kannski mest á að fá unga fólkið til að kjósa.