kosningar til sveitarstjórna.
Frú forseti. Hvers vegna ættum við að vera að afgreiða þetta frumvarp núna? Ég kann ekki svarið við þeirri spurningu, en ég held að það sé óskynsamlegt, eins og ég sagði í ræðu minni. Ég held að það sé skynsamlegt, ég held að það sé eftirsóknarvert og það ætti að vera eftirsóknarvert fyrir hvern einasta þingmann hér inni að við reyndum að ná almennri samstöðu um þær breytingar sem við erum að gera á kosningalögum. Það er auðvitað fordæmisgefandi ef við ætlum að afgreiða breytingar á kosningalögum í miklum ágreiningi. Það yrði fordæmisgefandi fyrir framtíðina. Við erum þá að gefa ákveðið fordæmi fyrir því að það sé hægt og það sé skynsamlegt og rétt að breyta einhverjum leikreglum þegar kemur að því hvernig við stöndum að vali á kjörnum fulltrúum. Ég vara við því.
Ég velti því hins vegar fyrir mér hvort rétta leiðin sé að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar. Ég hef ákveðnar efasemdir um það. Ég hygg að það sé vel hægt að taka þá ákvörðun hér og sameinast um að við höldum áfram að vinna málið í þinginu, höfum forræði á því.
En það er annað sem veldur mér hugarangri og er ástæðan fyrir gagnrýni minni. Ég sé ekki að rétt sé að veita fólki annars vegar 16 ára atkvæðisrétt í sveitarstjórnarkosningum en meina því að hafa atkvæðisrétt þegar kemur að alþingiskosningum. Ég vil nefnilega ganga lengra en flutningsmenn þessa frumvarps. En við þurfum líka að ræða í fullkominni hreinskilni hvaða áhrif lækkun kosningaaldurs (Forseti hringir.) hefur á barnaverndarmál almennt og hvernig við stöndum að því að verja réttindi (Forseti hringir.) barna á Íslandi.