Evrópusambandið og skýrsla ráðherra um EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Mig langar að leita til hæstv. utanríkisráðherra með skýringu á ákveðnu orðalagi. Eins og flestir vita var viðræðum við Evrópusambandið hætt hér fyrir nokkrum árum, viðræðunum í raun slitið. Ýmsar deilur urðu út af því eins og þekkt er. Hins vegar vitum við að ákveðnir flokkar hafa viljað sækja um og jafnvel ganga inn í þetta samband. Einn flokkur hefur daðrað við þetta sem eru Vinstri græn, hafa slegið úr og í. Í skýrslu sem ráðherra kynnti fyrir okkur, gaf hér út fyrir stuttu, sem heitir Gengið til góðs – skref í átt að bættri framkvæmd EES-samningsins, er örlítið komið inn á Evrópusambandið og það ferli sem átti sér stað og þá staðreynd að við hættum að vera umsóknarríki. Í textanum kveður hins vegar við tón sem ég hef ekki heyrt áður og mig langar að spyrja ráðherrann hvort eitthvað sé að gerast í ráðuneytinu á hans vakt, hvort menn séu eitthvað að linast í trúnni á að við eigum ekki að vera í Evrópusambandinu. Á bls. 13 stendur, með leyfi forseta:
„Tveimur árum síðar kunngerði ríkisstjórnin ESB að gert hefði verið algert hlé á viðræðunum …“
Hvað er algert hlé? Ég hélt að annaðhvort væri hlé eða ekki hlé. Er ráðherrann að gefa annað í skyn í þessu riti -— og ég spyr þá: Er það hluti af díl þessara stjórnarflokka að hafa orðalagið með þessum hætti, að ekki sé skýrar kveðið á um að við erum ekki umsóknarríki og verðum ekki umsóknarríki á næstunni?
Þegar viðræðunum var hætt — ef menn vilja nota orðið slitið geta menn það að sjálfsögðu — var alveg skýrt að það var ekkert eftir af þessu ferli. Það kom alveg skýrt fram líka. Bréf það sem var afhent forsvarsmönnum Evrópusambandsins tók af allan vafa um það sem og bréf forsætisráðherra. Því hljótum við að spyrja hvað algert hlé þýðir.