Evrópusambandið og skýrsla ráðherra um EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Bara svo að það sé alveg á hreinu: Það er ekki þannig að menn detti óvart inn í Evrópusambandið. Það verður að vera stefna viðkomandi ríkisstjórnar og þingmeirihluti fyrir því að sækja um, í það minnsta. Ég get fullvissað hv. þingmenn og aðra um að menn þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af því að íslenska þjóðin vakni upp einn daginn og hafi óvart dottið inn í Evrópusambandið. Það er ekkert að gerast.
Hvað varðar orðalag í skýrslum geri ég ráð fyrir að þetta sé tekið upp í takti við það orðalag sem var til staðar þegar menn gengu frá þessu. Ég var ekki þar í embætti utanríkisráðherra. Síðan hafa tvær ríkisstjórnir verið. Hvorug hafði á stefnuskrá sinni að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Það hefur enginn nefnt í mín eyru af þingmönnum stjórnarflokkanna að skynsamlegt væri eða æskilegt að hugsa um að gerast aðili að Evrópusambandinu. Það er alveg örugglega ekki á stefnuskrá þessarar ríkisstjórnar. Ég get algerlega fullvissað hv. þingmann um það.