biðlistar.
Virðulegi forseti. Ég þakka ráðherra svörin. Biðlistar í dag, 3.400 bíða eftir aðgerð á Landspítalanum, þar af 1.428, eða 42%, lengur en í 90 daga. 709 sjúklingar á biðlista í febrúar eftir liðskiptaaðgerðum og 385 sjúklingar í bið eftir liðskiptaaðgerðum á mjöðm. Biðtími eftir hjúkrunarheimili hefur lengst. Þar hafa 30% karla og 40% kvenna beðið lengur en 90 daga. Hjá embætti landlæknis í nóvember, 365 einstaklingar voru að bíða eftir hjúkrunarrými. Við erum líka komin með fólk með alzheimer, 200 manns að bíða eftir þjónustu. Biðlistar eru alls staðar að lengjast.
Ég segi það alveg eins og er — það er tíu til tuttugu sinnum verra að bíða á biðlista en fara í aðgerðina sjálfa eða lenda í slysinu. Það verður eitthvað að gera. Það er ekki ásættanlegt að dæma fólk eftir því hvernig það slasast, hversu lengi það eigi að kveljast.