148. löggjafarþing — 60. fundur,  8. maí 2018.

neyðarvistun ungra fíkla.

[14:08]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég vil gera hér að umtalsefni stöðu ungra fíkla á Íslandi í dag. Staðan er sú að rekin eru tvö meðferðarheimili á vegum Barnaverndarstofu sem samtals rúma 10 einstaklinga. Á barna- og unglingageðdeild eru sex rými í neyðarvistun, þrjú strákapláss, tvö stúlknapláss og eitt svokallað gæsluvarðhalds- eða sérverkefnispláss og eru plássin hvort tveggja ætluð ungum fíklum sem og börnum og unglingum með annars konar vanda. Á meðferðardeildinni eru svo sex pláss. Þau eru ekki frátekin fyrir kynin svo þar er það bara umsóknarröðin sem gildir. Þar hefur verið stöðugur biðlisti enda plássin sárafá.

Herra forseti. Á þessu ári einu hefur það gerst í rúmlega 20 skipti að ekki hefur verið hægt að taka á móti börnum í verulegri neyð á neyðarvistun BUGL, þar af 15 sinnum bara í marsmánuði.

Hæstv. heilbrigðisráðherra. Þetta er líkt og ef bráðadeildir landsins segðu við slasaða einstaklinga sem koma þangað með sjúkrabíl að því miður þá væri bara lokað. Þetta eru börn í það mikilli neyð að neyðarvistunin ein gildir. Það er bara hægt að grípa svo verulega inn í þeirra líf að neyðarvista þau, en því miður er ekkert pláss á Íslandi, ekkert úrræði annað en fangaklefarnir á lögreglustöðinni við Hverfisgötu.

Ég minni þingheim á og hæstv. ráðherra að við erum að tala um börn yngri en 18 ára.

Hæstv. ráðherra. Þetta er ekki í boði. Íslensk stjórnvöld verða að gera betur. Því spyr ég: Eru einhverjar áætlanir uppi á borðum ykkar sem tekur á þessum bráðavanda sem blasir við okkur?

Ég bið hæstv. ráðherra í fyllstu einlægni um að koma ekki með svar um að málið sé í samráðsferli, að drög séu að samtali, eða að útboð séu á næsta leiti. Þessi börn eru á vergangi og ég óska skýrra svara.