148. löggjafarþing — 60. fundur,  8. maí 2018.

neyðarvistun ungra fíkla.

[14:14]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Það sem ég var að kynna hér til sögunnar áðan er einmitt ekki langt samráðsferli heldur vinnufundur sem verður haldinn núna í lok mánaðarins til þess að bregðast hratt við. Ég vil líka minna hv. þingmann á það að við berum öll ábyrgð á því að hugsa til lausna í þessu máli. Ég bið hana afsökunar á því ef ég hef látið að því liggja að ég liti svo á að þetta væru gæluáhugamál hennar því að sem betur fer er þetta viðfangsefni okkar allra.