frumvarp um tollkvóta á osta.
Virðulegi forseti. Ég verð að lýsa yfir vonbrigðum mínum í samhengi við það sem hv. þingmenn eru að nefna um málaskort. Áðan kom fram, í dagskrárliðnum óundirbúnar fyrirspurnir, að frumvarp um almenna gagnavernd muni ekki koma fram í dag heldur, eins og hæstv. dómsmálaráðherra sagði, á næstu dögum. Það vekur athygli mína, þar sem ég hef sérstakan áhuga á málfræði, að það orð er í fleirtölu. Hins vegar er einungis einn dagur eftir af þingfundum fram að 25. maí, það er þingfundurinn á morgun. Ef málið kemur ekki inn í dag, sem er greinilegt samkvæmt dagskrá að það gerir ekki, ef það kemur inn á morgun, óttast ég að það komist ekki til nefndar og verði þess vegna ekki sent til umsagnar. Það þýðir að það fær ekki einu sinni umsagnir aðila utan þessa þings á þessum tíma. Það er alveg óháð því hvað almennt er gert í sambandi við EES. Það hlýtur að hafa legið ljóst fyrir, eftir alla umræðuna um mikilvægi málsins, að málið þarf að komast til þingsins, það þarf að fá umsagnir, það þarf að fá almennilega þinglega meðferð. (Forseti hringir.) Ég sagði fyrr í ár að ég hefði ekki áhyggjur af því að við myndum samþykkja þetta of seint heldur að við myndum gera það illa. Nú hef ég áhyggjur af hvoru tveggja, ég held að við munum gera það of seint og of illa.