148. löggjafarþing — 60. fundur,  8. maí 2018.

frumvarp um tollkvóta á osta.

[14:26]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Herra forseti. Mig langaði aðeins að bregðast við orðum hv. þm. Þórunnar Egilsdóttur vegna mótvægisaðgerða. Stærstu mótvægisaðgerðirnar í þessu máli voru auðvitað í nýjum búvörusamningi þar sem stóraukið fjármagn var veitt inn í stuðning við landbúnað einmitt til þess að vega á móti þeim áhrifum sem aukinn innflutningur gæti haft á atvinnugreinina. Það er mikilvægt að halda þessu til haga þegar við ræðum mögulegar mótvægisaðgerðir. Samningarnir voru hins vegar gerðir til hagsbóta fyrir neytendur, bæði til þess að auka vöruúrval og mögulega hafa áhrif til lækkunar á matvælaverði hér á landi. Það virðist vera helsta áhugamál þessarar ríkisstjórnar að koma í veg fyrir að þau áhrif nái fram að ganga, að neytendur fái einhvers notið í þeim samningum sem gerðir voru við Evrópusambandið á sínum tíma. Það þykir mér miður.