frumvarp um tollkvóta á osta.
Hæstv. forseti. Sá sem hér stendur er nú alinn upp á íslenskum ostum og meira en vel haldinn. Það er í sjálfu sér ágætt að flytja inn osta og standa við þá samninga sem við gerum og ekki nema sjálfsagt að gera það. En ég hef meiri áhyggjur af öðrum málum sem hér er hent inn á dagskrá á síðustu dögum þingsins. Annars vegar EES-mál sem hljóta að hafa legið fyrir í ráðuneytum mánuðum saman og hins vegar stór mál eins og t.d. það sem er númer 19 á dagskrá í dag, með leyfi forseta, um aðgerðir gegn peningaþvætti. Eigum við virkilega að afgreiða mál af þessari stærð, ásamt máli um útlendinga og Schengen, í tímaþröng á síðustu dögum þingsins án virkilegrar umræðu? Hvers vegna í ósköpunum hafa þessi mál ekki komið fram áður eins og við erum búin að biðja um í stjórnarandstöðunni allt frá því að þing var sett? (Forseti hringir.) Að menn gyrtu sig í brók og kæmu fram með stór mál strax þá? En það var ekki hægt. Af hverju? Af hverju liggja þessi mál í ráðuneytunum mánuðum saman?