148. löggjafarþing — 60. fundur,  8. maí 2018.

norðurslóðir.

[14:32]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Herra forseti. Við ræðum hér eitt mikilvægasta mál samtímans, norðurslóðir og þróunina þar. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hingað og ræða við okkur þingmenn. Þetta er fimmþætt fyrirspurn ef þið hafið séð hana á þar til gerðu blaði.

Ég ætla að fara örfáum orðum um mína sýn á fjóra þætti og byrja á árangri Norðurskautsráðsins. Hann er töluverður, þar er friðsamleg og ágæt samvinna og fjöldi áheyrnarfulltrúa hefur komið að ráðinu. Þar eru t.d. samningar um fiskveiði og björgun og aðkoma frumbyggja hefur aukist mjög. Þeir eru 10% þess fólks sem þarna býr. Vísinda- og vöktunarvinna hefur aukist og þekkingarmiðlun milli landa, svo ég nefni eitthvað.

Þetta er plúshliðin en á mínushliðinni er sérstök yfirlýsing fimm strandríkja af átta um stjórn alls Norður-Íshafsins og Pólsvæðisins, þ.e. þrjú ríki eiga ekki strandsvæði að þessum hafsvæðum og er haldið utan við það samkomulag. Það vil ég setja á mínushliðina og eins áframhaldandi nýtingu jarðefnaeldsneytis á norðurslóðum, leit og vinnslu, þrátt fyrir að meira en helmingur þekktra byggða í heiminum verði að liggja kyrrar ef á að hamla gegn of mikilli hlýnun loftslagsins.

Hvað ágreiningsefni varðar vil ég einmitt nefna þetta með stjórn hafsvæða utan við 200 mílna lögsöguna, það eru ágreiningsefni allmargra ríkja þarna. Það er ágreiningur um vopnavæðingu og öryggismál á þessum slóðum og það er ágreiningur um hvað megi túlka sem raunverulega sjálfbærni náttúrunytja og það er líka ágreiningsefni að menn eru ekki sammála um afstöðu til aðkomu landa utan við norðurslóðir. Þá á ég t.d. við Kína og lönd Evrópusambandsins.

Vegna samstöðu langar mig að minna á að það eru mjög opnar og góðar umræður í Norðurskautsráðinu, því sem ég hef kynnst þar. Við getum kallað það bara góðan díalóg upp á útlensku. Þetta eru lausnamiðaðar viðræður sem hafa skilað árangri.

Eins er samstaða um mikilvægi siglinga á norðurslóðum. Það er kannski ekki samkomulag um þær en a.m.k. um að málin þurfi að ræða í botn og það er samstaða um nýsköpun þegar kemur að t.d. orkumálum, nútímasamskiptaleiðum á norðurslóðum og uppbyggingu innviða.

Aðildarríkin þyrftu að skilgreina sem víðast brýnustu verkefni sjálfbærrar þróunar, þ.e. hvað átt er við með sjálfbærri þróun, og vinna að henni. Þetta á við um samfélögin sjálf sem og náttúruna á norðurslóðum.

Það þarf að kalla fram fleiri bindandi samkomulög í fleirtölu. Það þarf að auka vöktun og búa til sjálfbærnivísa fyrir norðurslóðir og auka menntun á norðurslóðum. Lykillinn að framþróun í mörgum þessara landa er aukin og traust menntun, einkum meðal frumbyggjanna.

Ég vildi líka að grannt yrði hlustað á ríki sem eru utan við norðurskautssvæðið og að það væri aukin samvinna við þau, bæði á ríkisstjórnargrunni sem Norðurskautsráðið tekur til og eins til samvinnu á þinglegum forsendum, þ.e. á milli þjóðþinga þessara landa.

Ég ætla ekki að eyða mörgum orðum í formennskuna í Norðurskautsráðinu, ég reikna með að ráðherra fari ofan í það allt saman, bæði áherslurnar sjálfar og leiðir til að fylgja áherslunum eftir, eins og fyrirspurnin gerir ráð fyrir, og eins hvaða stofnanir hér innan lands muni taka þátt í þessu öllu saman. Það er búið að vinna núna töluvert að þessum málum og skipa mjög hæfan mann, Magnús Jóhannesson, til að leiða vinnuna á vissan hátt sem ég tel til mikilla bóta.

Það leikur enginn vafi á því að núna þegar utanríkisstefna stórvelda eins og Bandaríkjanna og Rússlands er að einhverju leyti í árekstrarstefnu getur það komið niður á starfseminni í Norðurskautsráðinu. Að því væri mikill skaði. Ég get nefnt í framhjáhlaupi að 13 mánaða verkefni og samráð um öryggi og varnir á norðurslóðum var sett saman að frumkvæði (Forseti hringir.) Bandaríkjanna. Eina ríkið sem er skilið þar undan er Rússland.