148. löggjafarþing — 60. fundur,  8. maí 2018.

norðurslóðir.

[14:37]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni fyrir að óska eftir sérstakri umræðu um málefni norðurslóða og fyrirhugaða formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu. Málefni norðurslóða eru sérstaklega þýðingarmikil fyrir Ísland og formennska okkar í Norðurskautsráðinu gefur okkur einstakt tækifæri til að móta þar áherslur til hagsbóta fyrir svæðið og íbúa þess.

Árangurinn af starfi Norðurskautsráðsins er mikill og enginn vafi á að ráðið hefur haft mikil áhrif á þeim rúmlega 20 árum sem það hefur starfað. Aðildarríkin eiga í uppbyggilegu samtali á vettvangi ráðsins um málefni svæðisins þar sem sjónum er einkum beint að því sem sameinar líkt og að auka skilning á umhverfi svæðisins og yfirstandandi umhverfisbreytingum og hvers konar tækifærum og áskorunum í efnahagslegu og félagslegu tilliti. Norðurskautsráðið hefur að auki lagt sitt af mörkum við að setja málefni norðurslóða á dagskrá alþjóðastjórnmálanna svo úr hefur orðið ný vídd í alþjóðlegu samstarfi og hefur haldið áfram að starfa sem friðsamlegur vettvangur aðildarríkjanna átta og frumbyggjasamtakanna sex fyrir samvinnu um sjálfbæra þróun á svæðinu. Það er mikilvægt að svo verði áfram enda mikil verðmæti fólgin í slíku samstarfi, ekki síst nú á tímum þegar vart verður aukins titrings í alþjóðasamskiptum eins og hv. þingmaður vísaði til.

Gleymum ekki hverjir sitja þarna við borðið, Norðurlöndin, Kanada, Rússland og Bandaríkin, svo að samsetning þessa ráðs er einstök. Við höfum einnig mjög áþreifanleg dæmi um beinan árangur af starfi Norðurskautsráðsins sem birtist m.a. í gerð samninga. Stokkhólmssamningurinn um varnir gegn mengun af völdum þrávirkra lífrænna efna og Minamata-samningurinn um varnir gegn kvikasilfursmengun eru dæmi um slíkt. Þá hefur Norðurskautsráðið einnig haft frumkvæði að gerð þriggja lagalega bindandi samninga sem fjalla um leit og björgun, viðbrögð við umhverfisvá og vísindasamstarf milli norðurskautsríkjanna og treyst þannig í sessi helstu markmið ráðsins.

Hvað ágreiningsefni og samstöðu innan Norðurskautsráðsins áhrærir er vert að hafa í huga að allar ákvarðanir Norðurskautsráðsins eru teknar samhljóða. Frá upphafi hafa aðildarríkin verið sammála um að samstarfið skuli fyrst og fremst lúta að sjálfbærri þróun á norðurslóðum. Um þessa megináherslu í samstarfinu ríkir góð samstaða og góður skilningur á mikilvægi samvinnu til að leysa þau úrlausnarefni sem við blasa.

Það er því ekki um sérstök ágreiningsefni að ræða innan ráðsins en eðlilega eru oft skiptar skoðanir milli ríkjanna um hvernig einstök mál skuli leyst. Það er líka gagnlegt að hafa í huga að Norðurskautsráðinu eru ákveðin takmörk sett hvað varðar efnistök. Til dæmis fjallar Norðurskautsráðið ekki um öryggis- og varnarmál eða fiskveiðar, tvo ólíka málaflokka sem eins og við þekkjum getur verið ágreiningur um.

Brýnustu verkefni á norðurslóðum með tilliti til sjálfbærrar þróunar eru vafalítið þau hvernig bregðast skuli við umhverfisbreytingum og vaxandi umsvifum á norðurslóðum í dag. Þessar breytingar koma m.a. fram í aukinni ferðaþjónustu og siglingum sem kalla á innviðauppbyggingu sem miðar að sjálfbærni samfélaganna. Aukið samstarf norðurskautsríkjanna um leit og björgun og mengun og varnir og lagalega bindandi samningar um þessi efni eru dæmi um skýr viðbrögð við þessum breytingum.

Eitt mikilvægasta verkefnið fram undan tel ég vera áframhaldandi aðlögun samfélaga á norðurslóðum að loftslagsbreytingum og mikil áhersla er innan Norðurskautsráðsins á samvinnu ríkjanna á þessu sviði.

Hvað málefnaáherslur í formennsku Íslands varðar stendur vinna við mótun formennsku yfir og samráð henni tengt, bæði hér heima og gagnvart samstarfsaðilum okkar erlendis. Samráð er nokkuð sem ég legg ríka áherslu á í þessum málaflokki eins og hv. þingmaður þekkir. Raunar hófst undirbúningurinn í upphafi árs 2017 með stórum hugarflæðisfundi í Hörpunni sem á annað hundrað manns sótti. Síðan þá hefur víðtækt samráð átt sér stað innan stjórnsýslunnar, gagnvart atvinnulífinu, háskólasamfélagi, frjálsum félagasamtökum og stjórnmálunum. Við sjáum fyrir okkur að sækja yfirskrift formennskunnar í sjálfbærnihugtakið sem verði leiðarljós í öllu tilliti, umhverfislegu, efnahagslegu og félagslegu. Horft er til þríþættra áherslusviða í þessu ljósi; hafsins, hagkerfisins og fólksins á norðurslóðum. Það gleymist stundum að þarna búa fjórar milljónir.

Undir þessum megináherslusviðum er svo verið að skilgreina aðgerðir til hagsbóta fyrir sjálfbæra þróun á svæðinu og vitanlega er tekið mið af straumum og stefnum á alþjóðavettvangi líkt og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og Parísarsamkomulaginu. Því má ekki gleyma að starfsemi Norðurskautsráðsins myndar ákveðna samfellu frá einni formennsku til annarrar þegar um 80 verkefni eru starfrækt undir hatti ráðsins og halda þau flest áfram á þeim tíma sem Ísland gegnir formennsku í ráðinu.

Þessu til viðbótar vil ég nefna að efling og styrking Norðurskautsráðsins er mikilvægur hluti okkar norðurslóðastefnu. Við viljum að ráðið verði áfram mikilvægasti samráðsvettvangurinn um málefni norðurslóða og munum í formennskutíð okkar beita okkur fyrir öflugu Norðurskautsráði. Þá vil ég nýta formennskuna til að stuðla að aukinni þekkingu meðal Íslendinga á málefnum norðurslóða og mikilvægi þess alþjóðasamstarfs sem við tökum þátt í á svæðinu.

Ísland mun kynna áherslur sínar innan Norðurskautsráðsins síðar á þessu ári og munu áherslumálin koma fram í samþykktum ráðherrafundar ráðsins í Finnlandi í maí 2019. Þar með eru áherslurnar komnar á dagskrá í vinnunefndum ráðsins og Ísland mun síðan með forystu í embættismannanefnd ráðsins fylgjast með framkvæmd þeirra. Við leggjum áherslu á að málaflokkar (Forseti hringir.) þeir sem Norðurskautsráðið fæst við séu ávallt, hvað sem formennsku í ráðinu líður, eðlilegur hluti af starfsemi þeirra fagráðuneyta og undirstofnana sem hlut eiga að máli. Þannig sinna(Forseti hringir.) ýmis ráðuneyti og undirstofnanir margvíslegu starfi á vettvangi Norðurskautsráðsins nú þegar. Þá er einnig mikilvægt að tryggja víðtækt samráð innan lands við útfærslu formennskunnar og leiðir utanríkisráðuneytið það. Þá eru ónefndar stofnanir á Akureyri (Forseti hringir.)sem sinna málefnum norðurslóða og fyrir liggur að stór hluti þeirra funda sem haldnir verða í formennskutíð Íslands (Forseti hringir.) verða haldnir á Akureyri, enda er Akureyri okkar norðurslóðamiðstöð.