148. löggjafarþing — 60. fundur,  8. maí 2018.

norðurslóðir.

[15:11]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni, fyrir að koma málefnum norðurslóða hér á dagskrá enda brýnt hagsmunamál okkar Íslendinga sem búum við ysta haf.

Stór hluti umræðunnar snýst um áherslur okkar Íslendinga nú þegar við munum gegna formennsku í Norðurskautsráðinu á árunum 2019–2021. Verkefnin eru sannarlega ærin og mætti e.t.v. lýsa þeim í þessum þremur orðum: öryggi, umhverfi og auðlindir.

Undanfarin ár og áratugi hafa menn beint sjónum sínum til norðurslóða af ýmsum ástæðum. Fyrst er það vegna þess að umtalsverðar breytingar eiga sér nú stað á þessu svæði þar sem útbreiðsla íss hefur farið minnkandi undanfarna áratugi og fyrirséð er að sú þróun muni halda áfram með tilheyrandi opnun nýrra siglingaleiða og einnig vegna þess að áhrif loftslagsbreytinga koma þar fram af meiri öfgum en víðast hvar annars staðar. Það er ekki einungis að þetta mál snerti umhverfið með umsvifamiklum hætti, heldur snertir það ekki síður stórkostlega öryggishagsmuni okkar.

Mikilvægast er að stuðla að stöðugleika, samvinnu og samstarfi á svæðinu með öllum ráðum. Auknar skipaferðir, bæði hefðbundnir sjóflutningar en ekki síður stórauknar ferðir skemmtiferðaskipa, kalla á stóraukna samvinnu þjóðanna sem búa í og við þetta svæði á sviði eftirlits og gera kröfur um viðbúnað sem er það öflugur að unnt sé að koma til bjargar ef slys ber að höndum. Þetta kallar hér á landi á öfluga landhelgisgæslu með öflugan skipakost, hafnar- og flugaðstöðu, sem liggur nærri skipaleiðunum.

Varðandi umhverfismálin vil ég bæta einu við hérna tímans vegna. Það þarf að krefjast þess að stórveldin veiti upplýsingar um hugsanlegar uppsprettur geislavirkni í höfunum frá tímum kalda stríðsins og að gerðar verði viðeigandi ráðstafanir í þessu efni til að koma í veg fyrir hugsanlegan geislaleka.