norðurslóðir.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir hans orð og hv. þingmönnum. Ég er sérstaklega ánægður með stjórnarandstöðuna, ég vil nefna orð hv. þingmanna Ólafs Ísleifssonar, Oddnýjar Harðardóttur og Þorsteins Víglundssonar; gott að heyra þessi sjónarmið. Lykilatriði sem við ræðum er þetta orð „sjálfbær“ eða þessi orð „sjálfbær þróun“. Ef ég tek út einn þáttinn sem eru náttúrunytjar þá heyrir maður of oft — ég er ekki að tala um þennan sal, bara almennt í umræðunni — að tækifærin yfirskyggi náttúruvernd og varkárni. Það er mín upplifun af umræðum um þessi mál í langan tíma. Þetta kristallast meðal annars í stórum væntingum um námarekstur og olíu- og gasvinnslu á norðurslóðum þrátt fyrir að þetta verði að liggja kyrrt meira eða minna. Erlendir gestir, t.d. á Arctic Circle eins og það heitir, hafa talað um sjálfbæra gas- og olíuvinnslu á norðurslóðum, hvað sem það nú er.
Það hafa líka oft heyrst orð um að við þurfum að verja hagsmuni okkar, með áherslu á „okkar“. Það er auðvitað rétt að nokkru leyti, en það snýst aðallega um ákvarðanatöku, ekki um Jan Mayen eða annað slíkt. Það er mjög mikilvægt að fólk átti sig á því að á þessum tveimur svæðum á jarðarkúlunni, Suðurskautslandinu og norðurslóðum, liggja hagsmunir okkar allra. Hvíti varnarskjöldurinn á báðum þessum stöðum skiptir sköpum um framtíð mannkyns, hvorki meira né minna.
Þessi skilningur er ekki síður mikilvægur en að sinna lykilatriðinu eða lykilorðunum um sjálfbæra þróun. Það er algert lykilatriði að fólk skilji að þetta eru ekki bara hagsmunir okkar, þetta eru hagsmunir allra. Það þarf að horfa fyrst og fremst á það, svo á okkur.