afbrigði um dagskrármál.
Virðulegi forseti. Málið snýst um fullgildingu fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja. Sá samningur var undirritaður 28. apríl 2016 í Bern í Sviss og allt í góðu með það. Síðan gerist það að við tekur Rodrigo Duterte þann 30. júní 2016, einn mesti hrotti sem sögur fara af, og ég tek eftir því að í fylgiskjali með þessari tillögu kemur fram, með leyfi forseta:
„… sem árétta þá skuldbindingu sína að styðja við lýðræði, réttarreglur, mannréttindi og mannfrelsi í samræmi við skyldur sínar að þjóðarétti, meðal annars eins og fram kemur í sáttmála Sameinuðu þjóðanna og mannréttindayfirlýsingu SÞ.“
Venjulega myndi ég fara út í þetta í umræðunni sjálfri, en mér finnst bara ekki við hæfi að hafa þetta mál á dagskrá. Mér finnst það augljóst að það eigi að bíða með þetta mál þangað til þessi hrotti, Rodrigo Duterte, er farinn frá völdum, hvernig svo sem það gerist. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)