148. löggjafarþing — 60. fundur,  8. maí 2018.

upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.

135. mál
[15:28]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Eins og fram hefur komið í ræðum og andsvörum sem ég hef flutt um þetta mál er það afskaplega lítilfjörlegt og lítilsiglt, af litlum metnaði sett fram og takmörkuðu valdi sem menn hafa til að koma málum sínum fram eða takmörkuðum metnaði. Hins vegar drepur þetta mál engan, það skemmir ekkert í sjálfu sér, það verður ekki til neins en ég ætla ekki að standa í vegi fyrir því að það fari hér í gegn. Í sjálfu sér er það samt gjörsamlega þarflaust og gagnslaust.