148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

Störf þingsins.

[15:22]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Ég hef nýtt þennan lið, um störf þingsins, undanfarandi til að koma á framfæri og ræða störf hv. fjárlaganefndar í tengslum við fjármálaáætlun, ekki síst samstarf við aðrar fastanefndar, skipulagið og störfin tengd þeirri umræðu og umfjöllun. Þetta hef ég gert frá fyrstu viku þar sem við héldum sameiginlega fundi með öðrum fastanefndum og fengum ráðherra og starfsmenn ráðuneyta til fundar og kynningar á sínum málefnasviðum. Ég hef fengið ágætisviðbrögð við því fyrirkomulagi, þ.e. sameiginlegu fundunum, en eins og gengur eru skiptar skoðanir á því hvernig til hefur tekist. Það er ljóst að við verðum að endurskoða það fyrirkomulag og þá segi ég með framhaldið í huga að það er nauðsynlegt að yfirfara það skipulag milli formanna nefnda og ákveða fyrir næstu áætlun hvernig best sé að haga því.

Núna eru nefndirnar hver fyrir sig að klára gestakomur vegna málsins og í óðaönn að undirbúa og sumar hverjar skrifa umsagnir um málið til fjárlaganefndar. Ég hef fengið fyrirspurnir frá formönnum nefnda um hvenær þær umsagnir þurfi að skila sér. Ég hef svarað því að því fyrr, því betra. Til að setja einhvern punkt á málið hef ég talað um 21. maí og ætla að fylgja því eftir með pósti til formanna nefnda þannig að við getum farið að huga að því. Það geri ég með það í huga að fjárlaganefndin ætlar að hafa fund 16. maí og klára gestakomur og reyna að vinna að því að vera tilbúin með drög að nefndaráliti þegar við komum hingað aftur (Forseti hringir.) eftir sveitarstjórnarkosningar.