148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

afgreiðsla þingmannamála úr nefndum.

[15:36]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Forseti. Ég kem hér upp vegna þess að lýðræðislegt starf fastanefnda Alþingis er í uppnámi víðast hvar. Endurtekið berast mér þær fregnir frá hv. samflokksmönnum mínum sem og öðrum hv. þingmönnum úr minni hlutanum að öll þingmannamál eða svo gott sem sitji pikkföst í nefndum í krafti þeirrar fullyrðingar að engin mál skuli afgreiða úr nefndum nema um það sé einhvers konar fullkomin hallelújasátt hér á þingi. Þetta er ekki sú leið sem við höfum valið okkur til þess að afgreiða mál úr nefndum. Til hvers eru minnihlutaálit ef þau eru ekki til þess að afgreiða ágreining úr nefndum? Ég fer þess á leit við hæstv. forseta að hann beiti sér fyrir því að nefndarmenn fari að virða lýðræðisleg störf og fari að hleypa málum í gegn sem eru tilbúin. Þetta er ekki í lagi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)