afgreiðsla þingmannamála úr nefndum.
Virðulegi forseti. Vorið er að koma. Við verðum þess vel áskynja, þegar við löbbum út á Austurvöll, að vorið er svo sannarlega að koma.
Fyrr í vetur ræddi ríkisstjórnin um það að það ætti að efla Alþingi, það ætti að efla samstarf og samvinnu Alþingis og flokkanna sem hér væru. En nú er svo komið að þegar grafið er örlítið undir yfirborðið kemur í ljós að það er allt gaddfreðið. Jafnvel góð og gild mál sem allir eru sammála um eru tekin í gíslingu stjórnarinnar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Allt tal um samstarf og samvinnu eru orðin tóm. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)