148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

afgreiðsla þingmannamála úr nefndum.

[15:42]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Ég kem hér upp með svipaða ræðu og aðrir þingmenn um eflingu Alþingis og vinnubrögðin í fastanefndum. Ég vitna í stjórnarsáttmálann um að efling Alþingis sé eitt af forgangsmálum ríkisstjórnarinnar. Sjálfstæði þingsins verði styrkt, m.a. með auknum stuðningi við nefndastarf og þingflokkana. Við viljum ný vinnubrögð, segir þar.

Þetta voru nýju vinnubrögðin sem ég varð vitni að í morgun. Ég sat sem varamaður í velferðarnefnd. Þar var allt stoppað sem kom frá minni hlutanum og talað um að vinna yrði þessi mál betur. Ég tek undir með öðrum þingmönnum sem töluðu hér á undan. Við erum í pólitík og við vinnum þannig. Við getum ekki gert allt í breiðri sátt, við hljótum að geta tekist á um hlutina. Þess vegna verður að taka upp enn ný vinnubrögð um að pólitíkin fái að njóta sín hér á Alþingi.