afgreiðsla þingmannamála úr nefndum.
Herra forseti. Í dag eru u.þ.b. 15 ár síðan ég lagði fram mitt fyrsta þingmál fyrir Alþingi. Það var um að afnema fyrningarfrest í kynferðisafbrotum gegn börnum. Þetta mál naut stuðnings langt út fyrir raðir míns eigin flokks og málið var þess eðlis að ég hélt að það myndi ganga tiltölulega hratt í gegnum þingið.
Nei, aftur og aftur á þeim tíma fékk ég þau skilaboð að þar sem ég væri í stjórnarandstöðu á þeim tíma fengi ég ekki þetta mál samþykkt. Takið eftir, við vorum að tala um að afnema fyrningarfrest í kynferðisafbrotum gegn börnum. Þar sem ég var stjórnarandstöðuþingmaður átti ég ekki einu sinni að fá þetta mál inn í sal. Við tók fjögurra ára barátta, m.a. við þáverandi formann allsherjarnefndar, sem vill svo til að er núverandi fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, og eftir heilmikið víl og díl og baktjaldamakk var loksins hægt að samþykkja þetta tímamótaskref í réttindabaráttu barna.
Svo hafa liðið 15 ár. Ég hélt að við værum komin lengra en þetta. Ég hélt að við værum öll svo meðvituð um að við sem værum hérna megin í salnum (Forseti hringir.) hefðum ekkert endilega minna umboð til löggjafarstarfs en ráðherrarnir. En enn á ný fáum við staðfestingu á að svo er ekki. Það er sérstaklega sorglegt, herra forseti. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)