148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

afgreiðsla þingmannamála úr nefndum.

[15:47]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég kem í pontu til þess að taka undir það sem hv. þingmenn hafa sagt hér á undan mér um þetta ófremdarástand. Hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson, nafni minn, hélt ágæta ræðu áðan um störf þingsins þar sem hann talaði um biðlista og það mikla böl sem biðlistar eru í heilbrigðiskerfinu. Mér virðist að hér á Alþingi búum við líka við ákveðið biðlistaböl sem eru öll þau brýnu þingmál sem bíða þess að verða afgreidd úr nefndum og ekki sjáanleg ástæða fyrir því að þau séu höfð endalaust í bið.