148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

afgreiðsla þingmannamála úr nefndum.

[15:55]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að mótmæla orðum hæstv. forseta um að hann hafi ekki húmor. Forseti hefur ágætishúmor. Við erum ekki alltaf sammála um alla hluti en húmor forseta er ágætur.

Mig langar að byrja á að taka undir orð hv. þm. Ingu Sæland um fundinn sem var í morgun. Það er mjög undarlegt að einn flokkur skuli vera skilinn út undan. Það er allt í lagi að leita skýringa á því.

Ástæðan fyrir að ég kem hingað upp er það ástand sem er í nefndum. Það er ekki þannig að stjórnarandstaðan hafi tafið fyrir málum stjórnarliða í nefndum Alþingis, það er alls ekki þannig. Stjórnarandstaðan hefur liðkað til fyrir málum frekar en hitt. Á hinn bóginn hafa stjórnarliðar beinlínis tekið ákveðnar nefndir í gíslingu. Það á ekki við um alla stjórnarliða að sjálfsögðu, það á við um einstaka stjórnarliða sem neita að afgreiða mál út úr nefndum. Það liggur nánast við að það sé sama hvort það er stjórnar- eða stjórnarandstöðumál.

Velferðarnefnd er sérstaklega slæm þegar að þessu kemur, ég ætla bara að leyfa mér að segja það. Annar fulltrúi Vinstri grænna þar gjörsamlega (Forseti hringir.) stoppar allt sem þar er og það er fulltrúi flokksins sem ætlar allt að laga og bæta.