afgreiðsla þingmannamála úr nefndum.
Virðulegi forseti. Ég var ekki hér fyrir 15 árum en ég var hins vegar hér á þarsíðasta kjörtímabili. Þá greiddi meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar eitt sinn atkvæði gegn því að taka út hið svokallaða áfengismál, bús í búðir eins og við köllum það hér á göngunum. Það varð allt vitlaust, manni voru sendir reiðipóstar — og það var fyrir það að vilja ræða málið betur. Það var einfaldlega skoðun meiri hluta nefndarinnar að fleira þyrfti að koma fram, við værum ekki búin að tæma málið. Það er mælikvarðinn, hvort við séum reiðubúin að taka afstöðu til málsins, ekki einhverjir samningar. Það sem hv. þm. Birgir Ármannsson sagði áðan staðfestir það sem hér er kvartað undan. Ef þetta er hluti af einhverjum samningum er ekki verið að fara eftir því hvort málin séu komin á þann stað að þingmenn nefnda geti myndað sér afstöðu og lagt fram sín eigin nefndarálit. Það er nýtt, þetta var ekki svona á þarsíðasta kjörtímabili. Þetta er nýtt og þetta er undir ríkisstjórn sem segist ætla að efla starf Alþingis. Það er bara bull, það er þvæla. Þetta er ekki efling á því, þetta er nýtt og við eigum að hafna þessu alveg strax. (Forseti hringir.) Ég veit að hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé hefur alveg nægan tíma fyrir málin okkar í minni hlutanum en þetta snýst ekkert um það og hann á að vita það. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)