148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

borgaralaun.

[16:24]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Hér eru borgaralaun til umræðu sem er óskilyrt grunnframfærsla af hendi hins opinbera frá 18 ára aldri. Helstu rökin með þessu fyrirkomulagi eru að nú séum við að renna inn í fjórðu iðnbyltinguna og þá muni störfum fækka með aukinni sjálfvirknivæðingu. Þetta myndi auðvelda kerfið og minnka skrifræði. Einnig er þetta leið til að útrýma fátækt.

Allt eru þetta háleit markmið sem ég myndi halda að gætu leitt af sér góðar samfélagslegar breytingar á mörgum stöðum í heiminum. Það hafa verið gerðar tilraunir með slíka framfærslu í litlu þorpi í Namibíu sem leiddu til góðs enda var þar mikil fátækt, há glæpatíðni og mikið atvinnuleysi.

Ég fæ þó ekki séð að þetta módel sé tímabært hér á landi. Hér er atvinnuleysi undir 3%. Mannréttindi til þess að öllum 18 ára samborgurum okkar verði tryggð sjálfvirk óskilyrt laun frá hendi hinu opinbera eru ekkert endilega staðfest. Það er hins vegar skylda okkar að tryggja þeim sem geta ekki staðið undir framfærslu sinni af einhverjum ástæðum grunnbætur sem við gerum í okkar íslenska velferðarkerfi þó að okkur geti greint á um hvort þær bætur séu nægjanlegar.

Virðulegi forseti. Ef borgaralaunum yrði komið á hér á landi er ljóst að um verulegan kostnað yrði að ræða fyrir ríkið eins og það er í dag. Við þyrftum að fara í verulegar skattahækkanir og niðurskurð á ríkisrekstri. Hvaða stefnu málið tekur í framtíðinni er óráðið, en hugmyndafræðin er gömul og á rétt á sér í umræðunni þegar kemur að því að ná samfélögum og þjóðum upp úr fátæktargildrum.