borgaralaun.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Ég ætla að byrja á að ræða málið á svolítið öðrum grundvelli. Ég ætla að byrja á einni ljótustu setningu sem mér finnst vera í íslenskri tungu: Við ætlum að gera eitthvað fyrir þá sem minna mega sín. Þetta er hrokafullt og þess vegna segi ég: Borgaralaun klingja í eyrum mér. Það er miklu fallegra að fólk geti sagt: Ég fæ borgaralaun.
Við getum sett þetta í samhengi við til að mynda öryrkja, það eru örorkubætur, félagsbætur, barnabætur, vaxtabætur, húsnæðisbætur o.fl. Það er alltaf verið að segja: Nú ætlum við að bæta fólki eitthvað. Þið hafið það svo skítt, við ætlum að bæta það smá. Flestar þessar bætur eru svo skertar, teknar til baka. Svo koma styrkir; bílastyrkir, lyfjastyrkir, alls konar styrkir, styrkir sem fólki eru réttir í dag með vinstri hendinni en jafnvel meira tekið með þeirri hægri og sagt: Ja, þið fenguð helling.
Þess vegna segi ég: Í þessu tilfelli vil ég fá borgaralaun, ég vil að þau byrji þarna. Tökum þetta allt í burtu. Stokkum upp á nýtt. Hugsum upp á nýtt. Byrjum á borgaralaunum hjá öryrkjum, eldri borgurum, atvinnulausum, skólafólki — byrjum þar. Það væri frábær byrjun. Ég er alveg með það á hreinu að þetta myndi gera okkur gott. Síðan getum við útvíkkað þetta þegar fram líða stundir.
Við vorum að tala um þá sem minna mega sín og nú hlýt ég að vera einn af þeim sem meira mega sín. Ég þarf ekki borgaralaun (Forseti hringir.) en við vitum ekki með framtíðina. Ef við byrjum þarna neðst er það frábært.