Borgaralaun.
Virðulegur forseti. Ég vil eins og aðrir þingmenn þakka hv. þm. Halldóru Mogensen fyrir að hefja þessa umræðu. Við þessa umræðu eru helstu rökin þau að tækniþróunin sé að útrýma störfunum og bregðast þurfi við því. Ég held að tækniþróunin sé einmitt stærsta tækifærið sem við höfum til að auka jöfnuðinn og til að tryggja að þeir sem þurfa á umönnun að halda geti fengið hana og að sú umönnun og þjónusta verði veitt á hagkvæman hátt þannig að í framtíðinni verði til meiri fjármunir til að jafna kjör og hækka þá framfærslu sem þeir sem geta ekki aflað sér meiri tekna sjálfir geti fengið.
Ég held að við verðum að horfa þannig á þetta. Ég held að við eigum að setja meiri fókus á þetta. Ef það er það sem er að gerast, að tækniþróun fleygi svona hratt fram, þurfum við enn frekar að hugsa það hvernig við styrkjum þá frekar lánskerfi til nemenda. Hvernig virkar námslánakerfið eða styrkir til náms og annað slíkt? Við þurfum að hvetja fleiri og fleiri til að mennta sig af því að við viljum, held ég öll, að allir hafi jöfn tækifæri. Við verðum að hvetja fólk og aðstoða til að nýta tækifærin til að bregðast við breyttum heimi. Það er það sem við þurfum að gera.
Við megum alls ekki setja einhver kerfi hér á til þess að draga úr hvata fólksins til að nýta tækifærin, sækja fram og auka verðmætasköpun í landinu til þess að auka jöfnuðinn. Ég held að við aukum jöfnuðinn með því að hjálpa fólki til að nýta tækifærin.