borgaralaun.
Hæstv. forseti. Árið 1902 var fyrst sett vél í sexæring á Íslandi og hann sigldi út frá Ísafirði. Það er ekki lengra síðan. Í dag sigla kannski 10–12 karlar á skipum sem áður þurftu 30–40 manns um borð og annaðhvort vinna þeir aflann um borð eða kæla hann án íss. Róbótar sjá um að stafla en ekki mannshöndin. Þegar í land er komið skera tæknivæddar vélar aflann með vatni nákvæmlega í jafn stórar einingar til þess að hámarka arðinn af takmarkaðri auðlind.
Hvað hefur þetta haft í för með sér? Það að sjómönnum hefur fækkað alveg eins og mönnum í öðrum frumgreinum, en það hafa orðið til fjölbreyttari störf. Það hafa orðið til störf sem menn dreymdi ekki um hér fyrir 100 árum.
Ég tel að næstu 100 árin munum við sjá þessa þróun halda áfram. Það verða til enn fjölbreyttari störf. Við munum vinna styttri vinnudag en ég sé ekki að við munum öll setjast upp í hægindastólinn og bíða eftir því að róbótar vinni alla okkar vinnu þannig að ég held að það sé dálítið lengra í burtu. Ég er ekki einn af þeim sem sögðu að internetið væri bóla en ég held að þetta taki tíma. Auðvitað er þetta samt þörf umræða.
Það er hins vegar eitt sem við ættum að hugsa um. Í allri þessari allsnægt sem við búum við eru samt hópar í þjóðfélaginu sem standa höllum fæti og sem við höfum ekki ráðið við að sjá almennilega fyrir. Þar er ég að tala um hluta af öldruðum og þá sem hafa takmarkaða starfsgetu. Meðan við getum ekki alið önn fyrir þessu fólki, meðan það fær ekki mannsæmandi laun sem dugir því til framfærslu held ég að við ættum að bíða aðeins með (Forseti hringir.) borgaralaun handa öllum.