148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

Borgaralaun.

[16:43]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Halldóru Mogensen, fyrir umræðu um borgaralaun. Ég þakka einnig svör hæstv. forsætisráðherra og innlegg í þessa umræðu. Umræða um borgaralaun hefur fengið meiri athygli í heimi vaxandi misskiptingar, örbirgðar og fátæktar, en hugmyndafræðin á rætur sínar að rekja til þessara þátta, eins og hv. málshefjandi rakti svo ágætlega í framsögu sinni, sem og hæstv. forsætisráðherra.

Það er skiljanlegt að við leitum leiða til að byggja upp velferðarkerfi á öðrum grunni en þeim sem við þekkjum, það öryggisnet sem við þekkjum hér. En hugmyndin um skilyrðislausa framfærslu gengur lengra en það, eins og hún hefur þróast í áranna rás. Bregðast þarf við slíkri stöðu og snýr það að réttlátri dreifingu arðs af sameiginlegum auðlindum.

Slíkt kerfi er þó ekki einungis hugsað sem lausn á misskiptingu, ójöfnuði og fátækt, heldur einnig á óréttlátri skiptingu arðs af sameiginlegum auðlindum og svar við auknu flækjustigi sem er á margbrotnu bótakerfi þar sem fólk er flokkað. Sumir hópar verða undir í því skrifræði sem fylgir slíkum kerfum þar sem jafnræði verður að ómöguleika.

Eins og komið hefur fram í umræðunni eru fram undan miklar breytingar á atvinnuháttum, aukin tæknivæðing, sjálfvirknivæðing þar sem eftirspurn eftir vinnuafli breytist í það minnsta. Hún minnkar að öllum líkindum. Þá þarf að bregðast við því. Það er staðreynd að vinnandi höndum að baki hverjum eftirlaunaþega fækkar. Ég held að það kalli enn frekar á umræðu um slíka lausn sem borgaralaun geta verið, en það er önnur umræða, (Forseti hringir.) þ.e. raunhæfar leiðir til fjármögnunar, ef við ætlum að fara að skipta út því kerfi sem við þekkjum.