148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

borgaralaun.

[16:45]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegi forseti. Nýjasta dæmið sem ég veit um í sambandi við borgaralaun er það sem var gert í Bretlandi nýlega. Ef ég skildi það rétt á að borga ákveðnum hópi í Bretlandi 1,4 milljónir. Þarna er verið að reyna að skera á þriðju og fjórðu kynslóð fátæktar sem er auðvitað algjör snilld. Hvað má þetta fólk gera með þennan pening? Jú, það má nota hann til íbúðakaupa, menntunar eða sparnaðar.

Það er annað sem við gleymum alltaf í því ótrúlega kerfi sem við erum með í dag. Öll Tryggingastofnun ríkisins er í því að finna út hvernig á að skerða fólk, hvernig á að ná til baka þeim peningum eða einhvern veginn taka á því að skjólstæðingarnir fái ekki nógu miklar bætur. Vinnumálastofnun er svo í því að skrá út og inn og reikna vinnulaun. Síðan kemur LÍN. Við erum sem sagt með stofnanir úti um allt sem eru í því að reikna sama hlutinn með tilheyrandi kostnaði og mannafla sem er eiginlega í því að vinna sömu vinnuna, vinnu sem væri hægt að vinna einfaldar með því að setja upp borgaralaun í þessu samhengi.

Þess vegna segi ég að þetta muni koma í veg fyrir aukið skrifræði, pappírsvinnu, umsýslukostnað og ýmsan kostnað sem fylgir kerfinu sem við erum búin að búa til í dag. Ég segi ekki annað en að það væri frábært ef við bara tækjum okkur til, byrjuðum á þessum grunni og einfölduðum hann rosalega vel. Við gætum gengið þannig frá því að fólkið fengi viðunandi framfærslu (Forseti hringir.) sem það gæti lifað af með reisn.