Borgaralaun.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir þátttöku í umræðunni og þakka hv. málshefjanda sérstaklega, ekki síst fyrir að vitna í forsætisráðherra. Forsætisráðherra finnst það mjög skemmtilegt hvað þingmenn eru duglegir að vitna í hana í ræðustól enda vel sagt.
Umræðan sem hér hefur verið undanfarið sýnir að við erum stutt á veg komin í henni. Þess vegna vil ég ítreka það sem ég sagði í lok ræðu minnar, ég held að sú framtíðarnefnd sem skipuð verður á næstu dögum ætti að taka þetta mál upp til þess að skýra betur hvað við er átt. Ég tek eftir því að ýmist tölum við um skilyrðislausa grunnframfærslu til hvers og eins sem verði kerfi ríkisins, en síðan talar hv. þm. Björn Leví Gunnarsson um að hér þurfi hins vegar líka að vera velferðarkerfi til að bæta við þá framfærslu. Ég vitnaði í úttekt sem upplýsingaþjónusta Alþingis sendi frá sér 2016 og þar kemur fram að kostnaðurinn bara við skilyrðislausa grunnframfærslu er 1.200 milljónir á ári.
Síðan er búið að ræða um tækniframfarir. Ég tek undir með hv. málshefjanda að það er engin ástæða til þess að tengja þetta endilega við tækniframfarir og þetta hefur ekki verið tengt við þær. Ég er hins vegar sammála þeim sem hér tala, að þær kunna að vera miklu hraðari en fólk telur. Ég velti því stundum fyrir mér hvort þing sé ekki bara einhver hluti af mínu „matrixi“ satt að segja. Það kann bara vel að vera, við vitum ekkert um það. En við erum með ákveðinn vettvang sem ætlað er að taka nákvæmlega á málum sem þessum.
Ég nefni framtíðarnefndina. Ég nefni samráðsvettvang um aukna hagsæld þar sem farið er að taka á dagskrá málefni fjórðu iðnbyltingarinnar. Mín skoðun er sú að við þurfum að afmarka viðfangsefnið betur og setja niður þær spurningar sem við viljum fá svar við, til að mynda hvort ætlunin sé að bæta við öðru velferðarkerfi ofan á skilyrðislausa grunnframfærslu, hvaða áhrif þetta mun hafa á atvinnulífið og hvernig við metum þau, og á hvata þess til þess að greiða starfsfólki viðunandi laun. Ef ríkið er búið að taka á sig grunnframfærsluna í formi lágmarkslauna, mun það verða til þess að fyrirtækin munu í framhaldinu lækka launin (Forseti hringir.) og nýta aukinn þátt í arðsemi sinni til þess að auka við eignastöðu þeirra sem eiga fyrirtækin? Það leiðir að spurningunni sem hv. þm. Logi Einarsson (Forseti hringir.) varpaði fram: Getur þetta kerfi hreinlega leitt til aukins ójöfnuðar?
Það eru slíkar spurningar sem ég tel mikilvægt (Forseti hringir.) að stjórnmálin setji niður og afmarki áður en (Forseti hringir.) sérfræðingar fara að vinna að þessum málum. Þess vegna ítreka ég þá tillögu sem ég hef hér haldið á lofti um (Forseti hringir.) málsmeðferð þessara mála. [Hlátur og lófatak í þingsal.]