148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[16:55]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Nokkuð hefur verið rætt um væntanlegt frumvarp um ný persónuverndarlög, m.a. í óundirbúnum fyrirspurnum sem hv. þingmaður sem hér stendur átti við dómsmálaráðherra fyrir nokkrum dögum síðan. Í kjölfar þess sendi dómsmálaráðherra tölvupóst a.m.k. á þingflokksformenn og benti þeim á samráðsgáttina, að það væri nú gott fyrir þingmenn að nota hana til þess að kynna sér málið.

Það finnast mér sérkennileg vinnubrögð, sérstaklega í ljósi þess að eitt af stóru álitaefnunum er stjórnskipuleg atriði. Á þessari ágætu samráðsgátt er vísað til 8. kafla greinargerðarinnar, en það er enginn 8. kafli sem fjallar um það. Í öðru lagi eru engar athugasemdir við einstakar greinar í frumvarpinu sem er á samráðsgáttinni, en eins og menn þekkja sem lesa flókna löggjöf (Forseti hringir.) þarf skýringar með til þess að maður viti um hvað er fjallað.