148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[16:57]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ábending hv. þingmanns hryggir mig vegna þess að ég var að vona að þetta væri skjal sem hægt væri að kafa í, sem hæstv. dómsmálaráðherra setti inn í samráðsgáttina og sagði þingheimi frá í gær. Hins vegar kem ég hér upp til þess að halda aðeins áfram með umkvartanir mínar frá því áðan í sambandi við þingmál minni hlutans úr nefndum. Hér komu tveir hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans og hvorugur þeirra svaraði á þann hátt sem ég hefði viljað. Svarið sem ég hefði viljað fá, og nú ætla ég að panta ræðu, var eftirfarandi: Auðvitað eru mál tekin úr nefndum þegar nefndarmenn treysta sér til þess að mynda sér skoðun og skila nefndaráliti. Það er mælikvarðinn. Það er rétta svarið. Svo geta þeir skilað nefndaráliti sem er ólíkt öðrum og allt í góðu með það. Það er hluti af hinu þinglega ferli og er hversdagslegur hlutur.

Ég skildi orð hv. þm. Birgis Ármannssonar þannig að þetta væri nú orðið eitthvert samningsatriði, eins og við þekkjum við þinglok, þegar kemur að ræðutíma í pontu. (Forseti hringir.) Ef þessi hluti á líka að verða hluti af einhverri þingskapaleikfimi til þess að hafa stjórn á því, á tíma og hvar mál enda hérna, þá er það nýtt (Forseti hringir.) og það er algjörlega á skjön við áætlanir um að styrkja þingið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)