um fundarstjórn.
Hæstv. forseti. Á dagskrá dagsins í dag eru átta stjórnarmál til 1. umr. sem okkur er ætlað að gusa inn í nefnd til þess að hægt sé að leggja þessi mál í púkk með þeim málum sem afgreiða þarf eða má þegar við komum hér saman aftur. Svo virðist vera að þessi mál, sem ekki virðist alveg bráðliggja á, séu fyrst og fremst sett á dagskrá og ætlast til að fari inn í nefndir til þess að menn búi sér til einhverja vígstöðu um afgreiðslu mála úr nefndum þegar við komum hér aftur saman eftir sveitarstjórnarkosningar.
En ekki nóg með það, herra forseti, að mál stjórnarandstöðunnar skuli tekin í gíslingu í nefndum þingsins, heldur eru mál föst í nefndum þingsins vegna innbyrðis ósættis stjórnarliða. Nú fer þingvanur maður eins og hv. þm. Birgir Ármannsson á taugum (Forseti hringir.) og mælist til þess að við handveljum einhver mál þar sem lítil (Forseti hringir.) umræða verður um. Til hvers erum við hér? Eigum við nú að fara að flokka (Forseti hringir.) mál eftir því? Nei, það held ég ekki, herra forseti.