um fundarstjórn.
Herra forseti. Ástandið í þingnefndunum er auðvitað algjörlega óþolandi. Það er óþolandi að þingmannamál fái ekki eins meðhöndlun og stjórnarmál, þingmannamál sem búin eru að vera lengi í nefndum, gestir hafa komið og nefndarálit eru tilbúin, en ekki er hægt að taka þau út vegna þess að stjórnarliðar eru ekki til í það.
Ég kvarta undan því, herra forseti. Ég kvarta líka undan því að á dagskrá þingsins í dag er ekki mál um breytingar á kosningalögum sem er í miðri 3. umr. Það er þingmannamál sem var alveg að því komið að klárast og verða tilbúið til atkvæðagreiðslu, en það er ekki lengur á dagskrá. Ég lýsi líka óánægju minni með það, herra forseti.