um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Birgir Ármannsson talaði um að ástandið hjá stjórnarandstöðunni væri eins og lýðræðið væri tekið úr sambandi, hann orðaði það svo. En hvað erum við að tala um hérna? Hvað erum við að tala um? Við erum ekkert að tala um að lýðræðið sé tekið úr sambandi. Við erum að tala um fyrirheit stjórnarinnar í upphafi þings þegar stjórnin var mynduð. Við erum að tala um fyrirheit sem voru tekin úr sambandi, það voru fyrirheitin sem voru tekin úr sambandi. Hvernig hefur þetta verið í vetur? Við höfum upplifað skort, alvarlegan skort á stjórnarfrumvörpum, alvarlegan skort, og höfum oft rætt það undir liðnum fundarstjórn forseta. Góð mál hafa komið frá stjórnarandstöðu. Þetta gekk ágætlega til að byrja með. Samið var um að fyrir þeim yrði mælt og þau kæmust til umfjöllunar í nefndunum, sem gekk eftir. Hvað gerist nú? Nú hrúgast inn stjórnarfrumvörp, en frumvörp stjórnarandstöðunnar eru fryst. (Forseti hringir.) Þau eru fryst í nefndunum.