148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[17:15]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf):

Herra forseti. Flestir eða allir stjórnarandstöðuflokkarnir eru með þjóðþrifamál sem almenn samstaða er um og ættu að fá framgang í gegnum þingið að réttu lagi. Ef ég má leyfa mér að nefna það erum við í Flokki fólksins með mál sem víðtæk samstaða ríkir um. Síðan erum við líka með mál sem kalla á að þau verði rædd hér vegna þess að ég þykist vita að mismunandi samstaða sé í þeim efnum þó að við teljum þau vera sjálfsögð réttlætismál í þágu þeirra sem höllustum fæti standa.

Þannig að ég vil leyfa mér að hvetja hæstv. forseta til þess að beita sér fyrir því að skarð verði rofið í þann ísaldarjökul sem liggur hér yfir öllu og þannig staðið að málum að þau mál, (Forseti hringir.) sem náttúrlega er vitað hver eru eftir ítarlega fundi (Forseti hringir.) sem hafa verið haldnir með forseta og formönnum þingflokka, fái eðlilega og greiða leið (Forseti hringir.) í gegnum þingið.