148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[17:22]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Herra forseti. Við erum hér undir liðnum um fundarstjórn forseta að ræða lýðræðisleg vinnubrögð á þessu þingi. Nú er það svo að ýmis mál bíða afgreiðslu. Hvað okkar mál varðar ríkir ágæt sátt um mál sem við köllum Aðgengi að stafrænum smiðjum. Allir flokkar eru með á málinu, þ.e. þingmenn allra flokka, og ekkert sérlega mikill ágreiningur um það. Þó að ekki sé einu sinni búið að setja málið á dagskrá fyrir þinglok væri ágætt að koma því úr nefnd. En það situr allt fast til þess að hægt sé að veifa því framan í okkur sem gulrót eftir þetta hlé svo að við verðum nú stillt og prúð þessa lokadaga þingsins.

Ég ætla aðeins að minna á mál sem ríkisstjórnin sagðist ætla að leggja fram en hefur ekki lagt fram. Þar á meðal er heildarendurskoðun á lögum um uppreist æru, sem ég hef aðeins komið inn á áður. Við vitum nú að þeir sem hafa ekki aðgang að þessu hafa þar af leiðandi ekki neina leið til að ná sér í kjörgengi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Það er alveg á tæru. (Forseti hringir.)

Þetta er aðeins til að minna á að mikilvægari mál mættu vera í forgangi hjá þessari ríkisstjórn og okkar mál mættu kannski komast einu sinni úr nefnd þótt þau fari ekki á dagskrá.