um fundarstjórn.
Herra forseti. Aðeins öðruvísi vinkill á þetta: Þetta hefur verið góð umræða, hefur fengið mig til að hugsa. Nú er ég varaforseti og þarf stundum að sitja í stóli forseta og fer þar af leiðandi með allt forsetavaldið. Það fer svona með handabandi á milli okkar eftir því sem við stígum upp. Með forsetavaldi gæti ég gert ýmsa hluti. Ég gæti lokað umræðu um það mál sem er í gangi. Ég hef heimild til þess. En það segja nú allir: Það væri svolítið að misbeita valdi sínu að gera það. Að sjálfsögðu væri það að misbeita valdi sínu. Það væri ekki málefnaleg meðferð á málinu að beita því valdi.
Nú er meiri hluti nefnda, og stjórnarþingmenn hafa meiri hluta í öllum nefndum, fimm meðan minni hlutinn er með fjóra, að beita valdi sínu til að stöðva málefnalega framgöngu mála þegar málefnalegri umræðu er lokið; henni lýkur með gestakomum; búið að vinna nefndarálit í málunum og þeir eru að stöðva það að málið fái málefnalega framgöngu.
Ég myndi segja klárlega: Þetta er misbeiting á valdi. Rétt eins og það ef ég væri að beita mér þarna uppi í forsetastóli (Forseti hringir.) með því að ljúka máli, ganga harkalega fram, þannig að málsmeðferð sé ekki eðlileg í lýðræðislegum málum sem lögð eru fram á Alþingi. Já, ég myndi segja að þetta sé misbeiting á valdi í okkar lýðræðissamfélagi.