148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[17:32]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Hér hefur verið talað um átök og ósætti um mál og um pólitíska refskák. En mig langar að taka undir með hv. þingmönnum, sérstaklega hv. þm. Þorsteini Víglundssyni, með að þetta eru alveg stórfurðuleg vinnubrögð. Þar sem ég kem beint af vinnumarkaðnum, bæði opinberum vinnumarkaði og hjá sveitarfélögum, verð ég að segja að þessi vinnubrögð eru þinginu ekki til sóma. Við gætum haldið svo miklu betur á spöðunum og nýtt tíma þingsins og þingmanna og starfsmanna þingsins miklu betur en við gerum. Það er ekki minni hlutanum að kenna, það er meiri hlutanum að kenna sem beið lengi vel með að koma inn með stjórnarþingmál. Ég vil benda hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni á að ástæðan fyrir því (Forseti hringir.) að nefndirnar eru að ræða þingmannamál en ekki stjórnarþingmál er einfaldlega sú að stjórnin skilaði ekki inn frumvörpum sínum á góðum tíma. (LE: Nákvæmlega.)