148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[17:35]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Ég kem hingað upp þar sem orðum var beint til mín úr ræðustól áðan. Látið var að því liggja að ég væri vondi kallinn í velferðarnefnd, sem er út af fyrir sig ágætisstaða.

Varðandi það mál hins vegar sem hv. þingmaður nefndi þá hefur þess einu sinni verið freistað að ná viðkomandi máli út úr nefndinni. Þá taldi meiri hluti nefndarinnar málið ekki tilbúið. Síðan hefur í raun ekkert breyst. Nefndarálitið hefur ekki breyst neitt, ekki hafa verið kallaðir til fleiri gestir og svo framvegis. Seinast var málið á dagskrá í nefndinni í morgun en fundi var slitið áður en það var tekið til umræðu.