um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég vil kannski leyfa mér að svara spurningu hv. þm. Vilhjálms Árnasonar með jái. Til þess er þessi salur gerður að við getum greitt atkvæði um þau mál sem ágreiningur stendur um. Svo einfalt er það. Við eigum að kynna okkur málin, mynda okkur afstöðu og takast svo á í þessum sal um málin. Þetta er ferli sem meiri hlutinn hefur hamlað í öllum málum sem einum stjórnarþingmanni, eða mögulega tveimur, finnst óþægilegt. Hér er um að ræða kosningaaldurinn sem einhvern veginn er ekkert voðalega þægilegur biti að kyngja þannig að hann hverfur af dagskrá. Hér er um að ræða borgaralaun sem á að henda inn í einhverja framtíðarnefnd í staðinn fyrir að ræða það mál hér og klára skoðun á því. Og einhverra hluta vegna virðast stafrænar smiðjur fara í taugarnar á meiri hlutanum, þ.e. að framhaldsskólanemar og aðrir hlutaðeigandi geti fengið aðgengi að því að læra á nýjustu tækni og vísindi. Það er eiginlega (Gripið fram í.) stórkostlega merkilegt. Jú, og einmitt, bætt aðstaða kvennastétta. Það hlýtur að fara (Forseti hringir.) í taugarnar á einhverjum á stjórnarheimilinu líka.