148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[17:46]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Ég kem hingað upp til að bregðast við orðum hv. þm. Vilhjálms Árnasonar og hv. þm. Ólafs Þórs Gunnarssonar um málið með staðarval á nýju þjóðarsjúkrahúsi. Þeir töluðu um að það væri ekki búið að fá nógu góða umræðu í nefndinni og það gæti ekki farið til umræðu í þingsal þess vegna. Það eru umsagnir í nefndinni sem eru ekki allar á sama hátt og þess vegna þarf þetta að koma hingað inn til að fá pólitíska umræðu, til að við getum útkljáð málið. Svona mál getur ekki komið með breiðri sátt hingað inn. Þjóðin kallar eftir því að það fái þá umræðu sem það þarf að fá. Þetta er ekki eitthvað sem við getum kallað inn og svo greiðum við bara atkvæði um það einn, tveir og þrír. Þetta þarf að fá pólitíska umræðu einn, tveir og þrír. (Gripið fram í: Rétt.)