148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[17:50]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að bregðast við orðum hv. þm. Kolbeins Óttarssonar Proppés hérna áðan þar sem hann talaði um stjórnarandstöðuna sem kollega, og átti við í merkingunni „samherja“. Og að stjórnarandstaðan sé nokkurs konar her sem gangi í einum takti eða þar ríki mikil eindrægni og þar fram eftir götunum.

Stjórnarandstaðan er fjölmenningarlegt samfélag. Ég botna oft ekkert í Miðflokknum. Ég skil ekki áherslu hans á staðarvalsgreiningu á spítala, ég botna ekkert í henni. Ég tel hins vegar að hann hefði átt að fá sitt fram í því samkomulagi sem verið var að reyna að gera milli flokkanna í þinginu í gær. Hefði verið eðlilegt og sjálfsagt að mál Miðflokksins um staðarvalsgreiningu hefði komið (Forseti hringir.) inn í þingsal og við fengið að takast á um það. Ég hefði sennilega (Forseti hringir.) beitt mér gegn því.