um fundarstjórn.
Herra forseti. Hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé var svo elskulegur að minna mig á það áðan, ekki að þess hafi þurft sérstaklega, að Viðreisn væri búin að ná ákveðnum málum í gegn. Er kollegi minn búinn að færa formanni hv. allsherjarnefndar sérstakar þakkir fyrir það.
Staðreyndin er hins vegar sú að Viðreisn, þótt öflug sé, er ekki ein í stjórnarandstöðu. Við tilheyrum þar harðsnúnum hópi flokka sem þegar svo ber undir og hentar er ansi samstilltur þó að við séum fjölmenningarsamfélag, eins og hv. þingmaður bendir á. Við erum samstillt í því að vilja breytingar á ýmsum málum.
Mig langar til að benda á varðandi þær upplýsingar sem kallað var eftir og komu fram um þau þingmannamál sem náðst hafa í gegn, að það var líka ansi fróðlegt að sjá upplýsingar um fjölda þingmannamála sem lögð hafa verið fram, vegna þess að hér liðu vikur og mánuðir þar sem stjórnarandstaðan hélt uppi þingstarfinu. Það er ekki síst (Forseti hringir.) vegna þeirrar staðreyndar að við teljum að okkur vegið í afgreiðslu mála núna og leitum liðsinnis hæstv. forseta í (Forseti hringir.) að gera bragarbót á því.