um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég fylgdist með því úr fjarlægð þegar fjárlög 2017 voru sett. Þá var enginn meiri hluti í landinu. Þá fannst manni oft lifna dálítið yfir Alþingi því að þá þurftu allir flokkar að vinna þvert á flokkslínur. Ég man eftir viðtali við hæstv. forseta þar sem hann var að tala um þessi nýju vinnubrögð, hvað það væri góður bragur á því að menn þyrftu að gera málamiðlanir þvert á flokka. Og síðan tókst fólki að lenda jafn stóru máli og fjárlögum án þess að neinn meiri hluti væri í landinu. Það eru einmitt slík vinnubrögð sem við eigum að beita okkur meira fyrir. Við eigum að vinna þvert á flokkslínur. Við eigum að hleypa fleiri þingmannamálum inn í þennan sal því að oft eru þau pólitískari og fjölbreytilegri en stjórnarfrumvörpin, sem eru oft óttalega tæknileg og samin af embættismönnum og oft grútleiðinleg. Við erum hér kosin til að tala um pólitík. Af hverju megum við ekki draga þær pólitísku samræður sem við eigum hérna úti í sal og í aðdraganda kosninga inn í salinn? Af hverju má sú umræða ekki eiga sér stað í þessum sal í sífellt meira mæli? (Forseti hringir.) Svo leiðum við umræðuna til lykta með atkvæðagreiðslu. Það er lýðræðislegt (Forseti hringir.) og líka miklu skemmtilegra. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)