148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[17:54]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Enn er kallað á mig í pontu og það er ágætt. Menn hafa rætt um að hér hafi komið fyrir mál stjórnarandstöðunnar og enginn hafi dáið. Menn hafa líka verið að ræða um staðarvalsgreiningu sjúkrahúss. En það er einmitt mál upp á líf og dauða. Það kemur fram í umsögnum um þá tillögu, átta af ellefu umsögnum eru á þá leið, að það mál má engan tíma missa. Það er engin ástæða til þess að eyða tíma þingsins (Gripið fram í.) í tillögur sem stór meiri hluti þjóðarinnar hefur ekki nokkurn einasta áhuga á og vill ekkert að við séum að klára. (Gripið fram í.) Við einbeitum okkur frekar að málum sem varða hag þjóðarinnar. (GBS: Ætlar þú að ákveða það?) Við einbeitum okkur að þeim. (GBS: Ætlar þú að ákveða það?) (GBS: Ert þú með það?) (Forseti hringir.)

Varðandi síðan það mál sem hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson (Forseti hringir.) nefndi að hefði ekki verið tekið fyrir og ekki tekið út í morgun getur hv. þingmaður væntanlega vottað um eins og aðrir þingmenn í velferðarnefnd að í morgun kom fram að atriði vantaði inn í nefndarálitið. Það var ekki fullfrágengið, þess vegna var ekki færi á að taka málið út.